Flokkar
-
Krossar og merkingar
Krossar og púlt, sem notuð eru á leiði í duftgarði, eru úr tré.
Krossarnir eru úr furu. Þeir fást hvítir hvítir eða dökklitaðir og eru í tveimur stærðum.
Trépúlt er úr furu og fást hvít eða dökk.
Krossarnir og púltin eru merkt með svörtum málmskiltum sem letrið er grafið í.
-
Kistur
Útfararstofan kaupir kistur af einum stærsta kistuframleiðanda Danmerkur, sem þekktur er fyrir gæði, þjónustu og áherslu á umhverfisvæna vöru.
Meðfylgjandi eru myndir af þeim gerðum af kistum sem Útfararstofan býður viðskiptavinum sínum til sölu ásamt verðum með virðisaukaskatti. Sæng, koddi, lak og blæja fylgja með kistunum, ekki er greitt fyrir það sérstaklega. Þeir sem vilja kaupa sængurverasett úr bómullardamaski geta keypt það sérstaklega.
Við bjóðum upp á gott úrval af kistum, til eru ýmsar gerðir af hvítum kistum og viðarkistum. Hefðbundnar hvítar kistur eru framleiddar úr spónaplötum og mdf plötum, viðarkisturnar eru úr aski, furu, birki, mahogni og eik.
Hinar hefðbundnu kistur eru ætlaðar meðalmanni en til eru hvítar kistur í yfirstærð.
-
Blóm og kistuskreytingar
Hægt er að skoða myndir af kistuskreytingum og krönsum á heimasíðu Garðheima, Blómabreiða og Blómagallerís sem Útfararstofan hefur samstarf við. Aðstandendur greiða ekkert umsýslugjald aukalega þegar keyptar eru vörur af þeim.