|
Útfararstofa Kirkjugarðanna annast útfarir frá Fossvogskirkju
og öðrum kirkjum í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum.
Útfararstofa Kirkjugarðanna er til húsa að Vesturhlíð 2 í Fossvogi
og þar er góð aðstaða til þess að taka á móti aðstandendum í sérstökum
viðtalsherbergjum.
|

Útfararstofa Kirkjugarðanna |
|
Útfararstofan rekur verkstæði til framleiðslu á
kistum og krossum.
Einnig annast hún fjölföldun á sálmaskrám.
Útfararstofan ábyrgist að allt það sem viðkemur útför sé gert
í fullu samráði við aðstandendur.
|
|
Hvað tekur útfararþjónustan að sér?
Í þjónustu Útfararstofunnar felst að:
- Flytja lík í líkhús til vörslu þar til kistulagning hefur
farið fram
- Aðstoða við val á kistu
- Útvega kapellu til kistulagningar
- Útvega kirkju
- Panta organista, söngfólk og hljóðfæraleikara
- Útvega legstað í kirkjugarði
- Panta kistuskreytingar
- Aðstoða við val á sálmum
- Hanna og fjölfalda sálmaskrá
- Aðstoða við öflun líkbrennsluheimildar
- Útvega krossa á leiði og hafa umsjón með uppsetningu þeirra
- Stjórna útför
- Þakkarkort
|
|
Stjórn
Útfararstofan er einkahlutafélag í eigu Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP).
Stjórn
Útfararstofunnar er kosin á aðalfundi
kirkjugarðanna sem venjulega er haldinn í maí
ár hvert.
|
|