|
Íslenska þjóðkirkjan hefur lagt rækt við hátíðlegan og virðulegan
einfaldleika við útfarir. Þótt flestar útfarir séu í grundvallaratriðum
með svipuðu sniði í samræmi við Helgisiðabók íslensku kirkjunnar
eru þær samt mjög breytilegar og fer það eftir óskum aðstandenda
eða hins látna. Einkum eru útfarir frábrugðnar hver annarri hvað
tónlistarval og tónlistarflutning snertir.
Kistulagning
Kistulagning er stutt kveðjuathöfn nánustu fjölskyldu. Þessi siður
er útbreiddur á Íslandi en hefur lagst af víða í nágrannalöndum
okkar. Stundum er tónlist og söngur við athöfnina. Yfirleitt er
kistan opin og blæja er höfð yfir ásjónu hins látna. Aðstandendur
ráða því hvort blæjan er fjarlægð og er það gert í lok athafnar.
Kistulagning gæti farið þannig fram:
- Forspil
- Ritningarlestur
- Bæn Sálmur
- Sálmur
- Signing og blessun
|