Hvað gerist við líkbrennslu?

Tekið skal fram, áður en líkbrennslu er lýst, að útförin er með nákvæmlega sama hætti hvort sem um bálför er að ræða eða jarðarför. Reyndar er það sem gerist við líkbrennslu ekki í eðli sínu frábrugðið því sem gerist er líkami er grafinn í jörð. Sömu efnahvörfin eiga sér stað, munurinn liggur aðeins í því að upptaka súrefnis, þ.e.a.s. bruninn, er miklu hraðari við líkbrennslu heldur en við rotnun líkamans í jarðveginum.
  

Kista við glugga Leifs Breiðfjörðs í kapellunni í Fossvogi. Ljósm. K.M.

Við bálför er kista hins látna sett inn í líkbrennsluofn og þar tendrast hún eldi vegna hins háa hita í ofninum og brennur af eigin orku trjáviðarins. Kista og líkami breytast í ösku á um það bil tveimur klukkustundum. Þegar bruna lýkur er askan sett í sérstaklega merkt duftker og því lokað.

Þegar bálför er gerð fer fram nákvæm skráning og er hinn látni tilgreindur í dagbókum Bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, sem er eina bálstofa landsins.

Eins og áður sagði er bálför í engu frábrugðin venjulegri útför nema að því leyti að kistan er ekki borin til grafar. Aðrir þættir, eins og kistulagning og útfararathöfn í kirkju, eru með venjubundnum hætti.
Aðstandendur fá uppgefið á hvaða degi líkbrennsla fer fram og er þá hægara um vik að ákveða jarðsetningardag duftkers.


Líkbrennsluofn í Bálstofu Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma.
Ljósm. K.M.

Þegar bruni er afstaðinn er askan varðveitt í duftkeri og ákveða aðstandendur hvenær duftkerið er grafið í samráði við útfararstofu, þó eigi síðar en ári eftir bálför. Oft er prestur kvaddur til þegar duftker er jarðsett og flytur hann þá bæn og blessunarorð við gröfina.
Grafreitir fyrir duftker - fjölskyldugrafreitir
Sérstakur grafreitur fyrir duftker er í Fossvogskirkjugarði og var hann endurhannaður af Einari Sæmundsen landslagsarkitekt og endurgerður á smekklegan og vandaðan hátt 1991. Grafreiturinn er 5500 fermetrar að stærð.
Fjögur þúsund fermetra grafreitur fyrir duftker hefur verið gerður í Gufuneskirkjugarði.

Séð yfir hluta af grafreit fyrir duftker við Fossvogskirkju.
Ljósm. K.M.
Í drögum að skipulagi nýs kirkjugarðs í Kópavogi er einnig gert ráð fyrir duftreit. Einnig er hægt að setja duftker í hvaða grafreit sem er með samþykki umsjónarmanns grafarstæðis. Þannig er hægt að útbúa fjölskyldugrafreiti utan hinna hefðbundnu duftreita.
Fósturreitur og minnisvarði um líf
Þegar um fósturlát er að ræða er bálför venja.
Í Fossvogskirkjugarði er sérstakur 200 fermetra fósturreitur og var hann vígður 17. september 1994.
Á torginu framan við Fossvogskirkju er  minnismerki um líf, bogmyndaður veggur með vangamynd af engli, sem vígt var 18. október 1994. Borghildur Óskarsdóttir vann verkið og hefur meðal annars til hliðsjónar mynd á silfurþynnu, broti, úr fornri barnsgröf sem dr. Kristján Eldjárn fann við uppgröft í Skálholti árið 1954.

Minnisvarði um líf í Fossvogskirkjugarði.
Ljósm. B.B.

Á minnisvarðann um líf eru rituð orðin úr 139. Davíðssálmi: "Augu þín sáu mig er ég enn var ómyndað efni."


Minningarreitur um fóstur í Fossvogskirkjugarði. Ljósm. B.B.
Bálfarir tíðari en áður  


Duftker eins og þau tíðkast á Íslandi.
Ljósm. K.M.

Bálfarir hafa hægt og sígandi færst í vöxt hér á landi og eru þær um 17% af öllum útförum á höfuðborgarsvæðinu, en rúmlega 11% ef miðað er við heildartölu útfara á öllu landinu árið 1996.
Einstaklingur sem vill gefa yfirlýsingu um að útför hans verði bálför getur snúið sér til útfararstofu eða forráðamanna kirkjugarða og fengið þar sérstakt eyðublað til þess að fylla út. Viðkomandi aðilar sjá síðan um að afla tilskilinna leyfa og skrá óskina hjá Bálstofunni.
Aðstandendur velja milli jarðarfarar og bálfarar ef ekki liggur fyrir ósk hins látna.
Samgöngumál hafa þróast á þann veg að búseta utan höfuðborgarsvæðisins tálmar því ekki lengur að bálför sé valin. Skrifstofa Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma veitir allar upplýsingar í þessu sambandi og gefur leiðbeiningar um hentugasta flutningsmáta. Leitast er við að tryggja að enginn eða sem minnstur viðbótarkostnaður sé í því fólginn að velja bálför hvar á landinu sem viðkomandi einstaklingur hefur verið búsettur.

Lög og reglur um bálfarir

Í lögum númer 36 frá 1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu eru ýmis ákvæði um bálfarir. Þar segir meðal annars að óheimilt sé að greftra lík eða brenna nema dánarvottorð liggi fyrir svo og vottorð sýslumanns eða umboðsmanns hans um að tilkynning hafi borist um látið, samanber skiptalög.

Áður en líkbrennsla fer fram þarf enn fremur að vera fyrir hendi vottorð lögreglustjóra þess efnis að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að bálför eigi sér stað. Útfararstofur sjá um að útvega slíkt vottorð.
Í lögunum segir enn fremur: "Líkbrennsla hér á landi má eingöngu fara fram í stofnunum sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið löggildir.

Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum sem skylt er að varðveita í kirkjugarði eða löggiltum grafreit. Skal grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði ef vandamenn óska þess. Dýpt duftkersgrafar skal vera um 1 metri.

Kirkjugarðsstjórn getur ákveðið sérstakan reit í kirkjugarði fyrir duftker og á stærð hvers leiðis jafnan að vera hin sama, um 1/2 fermetri.
Nöfn þeirra er hvíla í duftreit skal rita í legstaðaskrá og eru grafirnar tölusettar.

Minnisvarðar í duftreitum Kirkjugarða Reykjavíkur mega aðeins vera púltsteinar. Þykkt þeirra skal vera 5 sm við fremri brún og 15 sm við aftari brún. Þeir skulu vera 40 sm á lengd og 35 sm á breidd. Ef um fjölskyldureit er að ræða skal hann vera 8 sm við fremri brún og 18 sm við aftari brún, 50 sm á lengd og 45 sm á breidd.

Bálför hagkvæmur kostur
Grafarstæði fyrir kistu krefst sex sinnum meira landrýmis en duftgröf. Af þessu leiðir að frá sjónarmiði landnotkunar og viðhalds kirkjugarða eru bálfarir mjög hagkvæmur kostur. Ekki þarf að gera eins miklar kröfur til grafardýpis, grunnvatnsstöðu og frárennslisaðstæðna í grafreitum fyrir duftker eins og í hefðbundnum grafreitum og eru þetta allt atriði sem gera duftgarða að ódýrum kosti miðað við kirkjugarða þar sem kistur eru jarðsettar.

Þar sem verulegur hluti íbúa velur bálför umfram jarðsetningu í kistu opnast möguleikar til þess að taka aftur grafir í gömlum kirkjugörðum sem fullsettir hafa verið. Jafnvel er hægt að taka aftur í notkun fjölskyldugrafreiti og nýta þá kynslóð eftir kynslóð. Vert er að hafa í huga að gamlir kirkjugarðar eru oft á tíðum með fegurstu og friðsælustu stöðum í bæjum og það hefur sitt gildi fyrir viðhald garðanna og fegrun að þeir séu nýttir áfram. Talsvert er um að duftker séu lögð í leiði í kirkjugörðum og er ekkert því til fyrirstöðu ef fyrir hendi er leyfi vandamanna.

Af hálfu íslensku þjóðkirkjunnar hefur því ekki verið haldið fram að bálför stríði gegn kristinni trú. Bálför er eins og jarðarför meðhöndlun á líkamanum eftir andlát. Hún snýst hvorki um trú né kenningu. Það má hins vegar halda því fram að bálför víki frá eldri kirkjulegri venju. En þá er þess að gæta að venjur og siðir innan kirkjunnar hafa síður en svo verið óumbreytanlegir í aldanna rás.

Til baka bálfarir